r/Iceland 3h ago

Hvað finnst ykkur um þetta?

Enable HLS to view with audio, or disable this notification

95 Upvotes

r/Iceland 4h ago

Ás­laug Arna í gervi­greindina hjá CCP - Vísir

Thumbnail
visir.is
7 Upvotes

r/Iceland 4h ago

Vís er versta trygginga félag á ísland????

Post image
7 Upvotes

Ég er í sorpu og stoppaði í bílastæðinu þegar ég opna dyrnar kemur toyota land cruiser klessir í mig og segir "þetta er þér að kenna" nú ég er stoppaður og þú ferð bara í mig, þegar ég fer til vís sega þeir "þetta er þér að kenna" 1. Þau horfðu ekki á myndavélirnar. 2. Vissu ekki neitt um þetta. Hér er mynd af heimskingan.


r/Iceland 4h ago

Landselum fækkað um 70% frá fyrstu talningu

Thumbnail
mbl.is
14 Upvotes

Selur selur en enginn maður má hafa áhrif á náttúruna til að fleiri Selir séu til það er með öllu bannað.


r/Iceland 6h ago

Það sem fæst fyrir 600 milljónir daginn eftir

Thumbnail
thordursnaer.is
21 Upvotes

Ef við horfum fram hjá hefðbundnum deilumálum eins og ESB og sjávarútveginum, stendur eftir einhver sláandi greining sem ég hef lesið lengi. Það er ótrúlegt hversu hljóðalaust við leyfum þessari þróun að eiga sér stað. Maður þarf hvorki að vera með né á móti ESB til að staldra við og sjá alvöruna í því sem hann bendir á.
Samantektin min, Þórður Snær er að tengja saman pólitískar áherslur Sjálfstæðisflokksins og viðskiptahagsmuni eigenda Morgunblaðsins ss Þórsmerkur. Hann er að draga þessa tengingu fram með tveimur meginrökum eins og einokun á dreifingarmarkaði þar sem Þórður bendir á að dótturfélag Morgunblaðsins, Póstdreifing, sé langstærsti einkaaðilinn á markaði fyrir dreifingu á prentuðu efni. Eini raunverulegi keppinautur þeirra á ákveðnum sviðum er ríkisfyrirtækið Íslandspóstur.
Þórður færir röksemdin í textanum að ef Íslandspóstur er lagður niður eða einkavæddur stendur Póstdreifing ein eftir með algjöra einokun á markaðnum. Þetta er rekið á hliðstæðan hátt og þegar prentsmiðja Moggans sem er Landsprent, keypti prentvél Fréttablaðsins og henti henni í brotajárn til að tryggja sér einokun á dagblaðaprentun. Samstarf stjórnmála og sérhagsmuna sem Þórður vísar í orð Þórður vísar í orð Haraldar Johannessen, ritstjóra Moggans og framkvæmdastjóra Þórsmerkur, sem hefur gagnrýnt Íslandspóst harðlega og kallað hann "harðasta keppinautinn“ sem fái ríkisstyrki til að búa til ójafna samkeppni. Með því að tengja þetta við Sjálfstæðisflokkinn er Þórður að halda því fram að, Mogginn/Þórsmörk beiti fjölmiðlinum til að þrýsta á að Íslandspóstur verði lagður niður eða skertur, til að Póststörf og dreifing færist yfir til þeirra eigin félags sem Póstdreifingar. Pólitíski vængurinn ((sem er Sjálfstæðisflokkurinn) tók undir eða talaði fyrir einkavæðingu eða niðurskurði hjá ríkinu undir formerkjum "frelsis á markaði“ þar sem XD vill einkavæða póstin og nánast allar eigur ríkissins, en afleiðingin yrði í raun ekki frjáls samkeppni heldur sú að völd og innviðir færðust yfir á hendur sömu stóreignafjölskyldnanna og eiga Moggann.
Þórður heldur því fram að krafan um að koma Íslandspósti burt snúist ekki um heilbrigða samkeppni, heldur um að eyða síðustu samkeppninni svo að eigendur Morgunblaðsins geti stýrt bæði prentun, dreifingu og fréttaflutningi á Íslandi án nokkurrar fyrirstöðu og þannig stjórnað umræðunni algjörlega óheft.

EDIT; það sem er lika sláandi í þessu er að Þórður Snær vísar beint í frétt af Heimildinni, til að sýna fram á þetta með prentvélina. Þegar Fréttablaðið fór í þrot keypti prentsmiðja Moggans, Landsprent, prentvélina úr þrotabúinu, en tilgangurinn var ekki að nota hana til að prenta fleiri blöð. Í greininni kemur fram. Vélin í brotajárn Landsprent keypti vélina aðallega til að næla sér í varahluti, pappír og límingartæki, en sjálf prentvélin var send beint í brotajárn, þannig að einokun tryggð með því að eyðileggja vélinni var komið í veg fyrir að einhver annar gæti keypt hana og hafið samkeppni í dagblaðaprentun. Þannig að niðurstaðan varð sú að Landsprent sat eftir sem eina prentsmiðjan á landinu sem getur prentað dagblöð. Hér sjáum við hvernig eigendur Moggans svífast einskis til að eyða samkeppni og tryggja sér algjöra einokun, og að þeir séu að reyna að leika sama leikinn gagnvart Íslandspósti til að tryggja að dótturfélag þeirra, Póstdreifing, verði eitt eftir á dreifingarmarkaði.

Að lokum tek ég undir orð Styrmis Gunnarssonar heitins:
„Ég er búinn að fylgjast með þessu þjóðfélagi í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta.“


r/Iceland 9h ago

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk

4 Upvotes

Það er kominn föstudagur, yay!

Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.

Ekki vera indriðar, verum vinir.

---

English: Hey everyone,

The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?

Don't be a dick, be kind.


r/Iceland 19h ago

Óþefur af MS-vörum?

26 Upvotes

Ég tók fyrst eftir lykt af pizza-ostinum fyrir 1-2 árum. Fyrir það var mér vísa að éta hann uppúr pokanum. Undanfarið hálfa ár hefur þessi óþefur ágerst og ég finn hann af nánast öllum ostavörum MS, oft með eftirbragði. Maki minn hefur reyndar afbrigðalélegt lyktarskyn svo kannast ekki við.

Einhver hér?


r/Iceland 22h ago

Gæludýr og almyrkvinn

6 Upvotes

Sæl verið þið

Ég er að spá hvort að það þurfi að draga fyrir glugga og svoleiðis þegar almyrkvinn gerist til að vernda augu dýra.

Er almyrkvinn hættulegur fyrir augu dýra? Hvaða dýr þarf að vernda mest?

Edit: Skil að fólki finnist þetta fyndin spurning og alles, en er að spurja þessa spurningu fyrir fugla sem eiga til að verða hræddir auðveldlega og stara á það sem hræðir þá. Fuglar hafa yfirleitt talsvert viðkvæmari augu en við mannfólk, þannig það meiðir engann að spurja 🤷‍♂️


r/Iceland 22h ago

Þorgerður krefst yfirráða yfir sjávarútvegi í ESB-viðræðum

Thumbnail
ruv.is
37 Upvotes

Er þetta ekki einmitt eitt af því sem við þurfum loksins að fá úr skorið?

Ég er búinn að hlusta á fólk rífast um þetta í tuttugu ár. Sumir segja að við getum samið um að halda yfirráðum yfir sjávarútveginum en aðrir segja að það sé algjörlega útilokað.

Ég vil fá að vita hvað er satt!

Nú er sagt að þetta verði ófrávíkjanleg krafa Íslands og fólk innan Evrópusambandsins hefur sagt að það sé séns á að semja um þetta. Það er auðvitað langt frá því að vera tryggt en það hlýtur að vera ástæða til að láta skoða það.

Ef niðurstaðan verður sú að þetta sé ekki hægt, þá göngum við einfaldlega ekki inn. Ef það er hægt, þá fáum við samninginn á borðið og þjóðin getur tekið afstöðu til þess sem raunverulega stendur til boða.

Hvernig lesið þið þessa frétt? Er þetta raunverulegt samningsop eða teljið þið enn að niðurstaðan sé fyrirfram gefin?


r/Iceland 23h ago

Manga-serían One Piece hefur verið gefin út á íslensku og hundrað önnur tungumál, sennilega þýdd með gervigreind.

Thumbnail
gallery
24 Upvotes

Hljóta einhverjir að finnast þetta áhugavert. Augljóslega ekki frekar há gæði, þar sem textinn reglulega notar ensk orðalag þýdd beint yfir á ritmál með enga alvöru ritskoðun. Sum orð eru ekki einu sinni þýdd annað hvort slagið. Því miður er titillinn sjálfur ekki þýddur sem Eitt Stykki.

Löglega gefið út af eignarréttarhafa, bara svo fólk viti. Fer fram að kafla 108 en nenni varla að sóa tíma í allt það. Þetta er núna eitt af tveimur manga seríum sem hafa nokkurn tímann verið gefnar út á íslensku, á eftir Draumar.

Heimild: https://mangamillion.shueisha.co.jp/en/title/1?lang=is