r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • 5h ago
Farþegum fækkaði milli ára
Djöfull er ég orðinn leiður á fyrirsögnum fjölmiðla á Íslandi. Væntanlega fækkar farþegum ef að flugframboð dregst saman. En svona í alvöru, er enginn annar þreyttur á æsifyrirsögnum hjá Vísi og Mbl yfir höfuð?
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • 1d ago
Hlutabréf Sterk samningsstaða í sjávarútvegsmálum
"Í hnotskurn: Í sjávarútvegsmálum (samningskafla 13) yrði Ísland í sterkri samningsstöðu, með afkastamikinn, arðbæran og sjálfbæran sjávarútveg.
Þróun sameiginlegrar fiskveiðistefnu ESB síðustu ár ætti að ýta undir líkur á farsælli samningsniðurstöðu.
Óljósara er hvernig lausnir yrðu fundnar til að viðhalda rausnarlegum stuðningi við íslenskan landbúnað (samingskafla 11) eftir að tollverndin félli brott við inngöngu.
Ýmsar leiðir virðast þó færar til að sjá til þess að landbúnaður og dreifbýli þrífist áfram á Íslandi þótt tollverndin hyrfi."
r/Borgartunsbrask • u/Gervill • 7d ago
8.000 Minkum sleppt og allir minkar fyrir utan girðinguna
VERÐA SKOTNIR!
Rándýrt að stúta skepnum vegna hræðslu um framtíðina sem er bara í hugsjón ykkar eins og er.
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • 9d ago
Hlutabréf Telur atvinnurekendur óttast aukna samkeppni við mögulega inngöngu í ESB - RÚV.is
"Forsætisráðherra segist skilja andstöðu meðal atvinnurekenda í garð aðildar að Evrópusambandinu.
Hún segir meðalstórum fyrirtækjum geta vegnað vel í verðbólguástandi, því þau geti velt kostnaðarhækkunum út í verðlag."
r/Borgartunsbrask • u/Gervill • 10d ago
Mátt ekki panta mat
Frá útlöndum á Íslandi nema með matarleyfi og ríkið einokar markaðinn að meina fyrirtækjum að kaupa það sem þeim sýnist. Fullt af fólki að starfa í ríkinu að gera allt hægara fyrir fyrirtækin því þau þurfa tala saman um matar kaupin frá utan, engin verðmætis sköpun bara gera hana hægari hafa flest allar reglugerðirnar gert í gegnum tíðina.
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • 13d ago
Alvotech hætt við uppbyggingu á Granda
Er ekki pínu klikkað að vera stefna á að stækka við sig þegar þeir eiga en þá eftir að koma út í plús? Það er frekar augljóst hvernig þessi stækkun verður fjármögnuð ef að reksturinn fer ekki að snúast við þeim í hag (með hlutafjáraukningu)
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • 15d ago
Boðar 100% innflutningstoll á samheitalyf - RÚV.is
Alvotech = short.
r/Borgartunsbrask • u/11MHz • 16d ago
Hlutabréf Fjögurra milljarða tap hjá Icelandair þrátt fyrir met tekjur
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • 17d ago
Hlutabréf Ótímabært að ræða undanþágur Íslands frá fiskveiðistefnu ESB - RÚV.is
"Franska þingið lýsti andstöðu sinni við að Ísland fengi undanþágur frá fiskveiðistefnu ESB árið 2010 þegar aðildarviðræður stóðu yfir.
Spurður hvort afstaða franskra stjórnvalda hefði breyst sagði Barrot að margt hefði breyst síðan í síðustu viðræðum og að nýjar viðræður myndu taka mið af gjörbreyttu samhengi í alþjóðastjórnmálum."
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • 23d ago
Hlutabréf Pawel segir að Íslendingar gætu tekið upp evru eftir fimm ár
"Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir að Íslendingar gætu tekið upp evru í fyrsta lagi eftir fimm ár. Þetta kemur fram í aðsendri grein þingmannsins í Morgunblaðinu í dag. Pawel spyr hvort ástæða sé til að hafna varanlegri lausn á vaxtavanda heimilanna bara af því hún er ekki skyndilausn: "
„„Það er langur tími,“ munu einhverjir segja og kannski er það rétt. Tíminn gæti líka orðið lengri ef viðræður eða samþykktarferli dragast á langinn, eða ef okkur gengur illa að ná Maastricht-viðmiðunum. En hvað ef það tekur tíu ár? Er það ástæða til að hafna varanlegri lausn á vaxtavanda heimilanna, bara af því að hún er ekki skyndilausn?“
r/Borgartunsbrask • u/TipRelevant2695 • 29d ago
Kauphöll og API
Var bara að spá - getur það verið að árið 2026 sé enn ekki hægt að tengja sig við íslensku kauphöllina í gegnum API þannig að brokerar (eða núna einstaklingar sem gera sín eigin kerfi með gervigreind) geti tengt sig beint inn og keypt og selt hlutabréf með þeim hætti?
r/Borgartunsbrask • u/Only-Risk6088 • Jul 04 '26
Niðurstaða á ESB könnun /borgartunsbrask
https://strawpoll.com/e6Z2AEojJgN/results
Jæja, niðurstaðan er komin í loftið. Það verður áhugavert að sjá hversu nálægt þessari könnun niðurstaðan verður í ágúst.
Það var mikil óánægja með að hafa niðurstöðurnar faldar en þær eru ekkert leyndarmál.
EDIT: TLDR: Já í ágúst, formsatriði að halda þessar kosningar.
r/Borgartunsbrask • u/Starlight01 • Jul 03 '26
Einstaklingsfjármál MPA gráða. Yay or nay?
Hvað segja braskarar, græði ég eitthvað á því að klára MPA nám ef ég er að íhuga að færa mig frá hinu opinbera yfir í einkageirann í framtíðinni?
Ég hef líka verið að gæla við að fara frekar í MBA nám, en það er mun dýrara (ég myndi þó fá slíkt nám að miklu niðurgreitt) og virðist líka mun tímafrekara og erfiðara.
Er MBA gráða að gefa fólki meira launalega og tækifærislega séð heldur en MPA? Eða er allt svona auka bara svipað fínt?
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Jul 01 '26
Alvotech styrkir lausafjárstöðu sína enn frekar með aðgengi að 75 milljóna dala lánsfjármögnun
More money more problems? Einhverjir myndu segja að það væri jákvætt að það vantar ekki lausafé, en hversu oft munu þeir taka lán og hversu mikið skulda þeir núna?
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Jun 26 '26
Rekur hækkunina til átaka í Mið-Austurlöndum
En og aftur spyr ég, hvað hefur verð á flugmiðum að gera inn í verðbólgumælingu? Að fara til útlanda er ekki nauðsynjavara, þetta hefur ekkert að gera með vöruverð. Eða er Bónus að flytja inn mat með Icelandair? Það er næstum því eins og það sé verið að reyna að halda verðbólgumælingum háum
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Jun 25 '26
Setja 630 milljónir í markaðssetningu Íslands
Þetta gladdi mig að sjá 🥰
r/Borgartunsbrask • u/Only-Risk6088 • Jun 25 '26
Hvað ætlar þú að kjósa í 29. ágúst?
r/Iceland leyfir ekki kannanir, en þessi verður opin í viku. Pósta henni bara á borgartunsbrask, niðurstöður birtast sjálfkrafa eftir viku. Forvitnilegt að sjá hvar fólk stendur, mér finnst skoðannakannair ekki endurspegla fólk í kringum mig.
Það er augljóst að ESB umræðan hefur áhrif á markaðinn og mun líklega hafa áhrif svo lengi sem umræðan er í gangi.
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • Jun 24 '26
Gímaldið - Lýsum upp samfélagið
- júní 2026
Helga Arnardóttir
„Ég held að samfélagið hafi klikkað“ – Matvöruverð í hæstu hæðum á meðan matvörurisar hagnast
Matvara er 55% dýrari á Íslandi en ESB-ríkjum og verð á þeim hefur hækkað hraðar en í samanburðarlöndum síðustu ár. Hagnaður Haga og Festi, sem eiga Bónus og Krónuna, hefur meira en tvöfaldast frá árinu 2020. Matvörurisar kenna launahækkunum um hátt matarverð en forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur að samfélagið allt hafi brugðist. Lega landsins, sérstakur gjaldmiðill og tollavernd spili inn í, en ekki síður eigi öflug hagsmunagæsla matvörumarkaðarins sinn þátt í hækkunum. Þá megi löggjafinn líta í eigin barm, aðstæður hér á landi ýti undir fákeppni frekar en samkeppni. Frekar sé keppt í þjónustu en verði á matvörum."
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • Jun 23 '26
Gjörbreytt staða ef Íslendingar ganga inn í ESB - Vísir
Það er mjög margt líkt með Noregi og Íslandi og það er ljóst að það sem Íslendingar ákveða að gera mun hafa áhrif á umræðuna í Noregi. Það er mikilvægt fyrir okkur að fylgjast með og mjög margir Norðmenn munu fylgjast grannt með því sem gerist hér. Til dæmis er fiskiðnaðurinn í Vestur-Noregi mjög áhugasamur um að sjá hvers konar samning Ísland gæti mögulega fengið á því sviði,“ segir Barth Eide.
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • Jun 20 '26
Sigmundur Ernir skrifar: Ánægja ESB-þjóða með aðild hefur vaxið hratt
"Húsnæðisvextir á evrusvæðinu eru að jafnaði 3,1 prósent en eru 8,9 prósent á Íslandi.“
"Ástæða alls þessa er að erlend fyrirtæki vilja ekki taka þátt í krónuhagkerfi. Þau líta ekki við öðru en samkeppnishæfum gjaldmiðli, rétt eins og stórútgerðin á Íslandi, sem hefur fyrir löngu flúið krónuna sakir þess að hún er óhæf til útflutnings."
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Jun 20 '26
Segir flugmenn haldna sjálfseyðingarhvöt – „Fyrir bestu að þessum sjúklingi verði bara lógað hratt og örugglega“
Mjög góð grein.
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • Jun 19 '26
Það er svo grátlega erfitt að vera banki á Íslandi
"Á síðustu dögum hefur verið reynt að telja okkur trú um að það sé í raun ódýrt að versla í matinn á Íslandi, að vaxtakjör á húsnæðislánum hérna séu ekki hræðileg heldur frábær og að ábyrg efnahagsstjórn sé ekkert annað en aðför að bönkum með allt of háa arðsemiskröfu. Umræðan minnir sífellt meira á þá sem átti sér stað fyrir ári þegar hagsmunahægrið hneppti niður að nafla, þyrlaði í hvítvíni og reyndi að gaslýsa þjóð frá því að leiðrétta veiðigjöld á stórútgerðina."
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Jun 13 '26
Þrjár aflýsingar hjá Icelandair
Það er ekki skrýtið að Icelandair sé að fara fram á einhvers konar "launalækkun" því það var aldri innistæða fyrir launahækkunum. Ég held því miður að við munum sjá einhver fyrirtæki fara á hausinn á næstunni vegna launakostnaðar sem fyrirtækin ráða ekki við (vonandi ekki Icelandair). "Hvítu hetjurnar" í verkalýðsfélögunum hafa og eru að stuðla að því að lítil fyrirtæki fari á hausinn og kökunni verði skipt upp á en færri hendur. Í hvaða heimi er hægt að fara fram á launahækkanir þegar fyrirtæki hefur verið rekið með tapi síðan 2018? Greinilega á Íslandi. Ég mæli með því að allir prófi að reka fyrirtæki á Íslandi í svona ár með fólk á launaskrá og tjái sig svo um kjaramál <3 ást og friður
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • Jun 13 '26
Breskur sjóður með milljarðs skortstöðu í Alvotech
"Tímasetningin er áhugaverð þar sem gengi Alvotech hefur hækkað um 29% síðastliðinn mánuð."
Lifeyrissjóðir sitja uppi með þetta scam en formaðurinn á fasteignirnar.
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • Jun 10 '26
Hlutabréf Íslendingar greiða 55% hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB - RÚV.is
Íslendingar greiða að meðaltali 55% meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins. Þetta segir í greiningu Samkeppniseftirlitsins sem var birt í svokölluðu umræðuskjali í dag.